22.8.2007 | 22:43
Byrjaður í Kennó
Jæja, elskurnar mínar þá er maður bara byrjaður í alvöru lífsins, eða þannig. Ég byrjaði á mánudag í Kennó og líkar bara helvíti vel,,, enn sem komið er. Hlakka til að takast á við námsefnið sem bíður mín þetta misserið.
Mér finnst þetta svolítið skrýtið að vera byrjaður í háskóla eftir níu ára fjarveru frá námsbókum, á hinn veginn hef ég verið að stunda "skóla lífsins" og tekst sáttur á við námið mitt.
Annað var það ekki meira
Jú annars,, Getur Stöð 2 ekki fundið eitthvað annað til að sýna á fimmtudags-og föstudagskvöldum og laugardagskvöldum en þessar helvítis leiðindaþætti eins og "So you think you can dance" og "America's got talent". Þvílíka og aðra eins rusldagskrá hef ég aldrei á ævi minni áður séð. Hvað er að gerast á stöð 2? Hafa þeir misst algjöran metnað í að halda afþreyingardagskrá????
ó já mig langar til að óska honum Héðni Sveinbjörnssyni forstöðumanni félagsmiðstöðvanna Þebu og Jemen hjartanlega til hamingju með stórafmælið í dag 22. ágúst. Ég hringdi í hann í dag og óskaði honum til hamingju með áfangan, þá var hann að kaupa hjól með mömmu sinni. Ætli hann hafi fengið hjálpardekk með? Nééé ætlið það; hann er orðinn svo stór, strákurinn.
Til lukku kæri vinur.
Einn koss á kinnina í tilefni dagsins.
Sjáið bara hvað hann er ánægður með að fá koss í afmælisgjöf.
Kiddi Jói kveður,,,,,, í bili.
Athugasemdir
Gangi þér rosalega vel í skólanum..það er stuð í kennó!
Maren, 23.8.2007 kl. 12:14
Hata þetta mogga-blogg-kommentakerfi arrrg, hvað legg ég ekki á mig fyrir þig bjútinn minn ;). Gangi þér rosalega vel í skólanum og taktu öllu fagnandi með opnum huga og jákvæðni, þá gengur þér svo miklu betur.
Lov'ja
Olla
Olla (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 16:47
Vildi bara skilja eftir smá kveðju elsku frændi ;)
Jói
Jóhann Waage, 26.8.2007 kl. 23:26
Gangii þér vel á menntaveginum vinur
ragnar gunnarsson (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 11:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.