Búinn að vera

Eins og fyrirsögnin segir, þá er ég búinn að vera, alla vega í kvöld! Ástæðan er sú að í dag, laugardag, fór ég ásamt systkinum og Hansa, kærasta Möggu suður til Reykjavíkur. Við byrjuðum á því að fara í Smáralindina og þar var fjöldinn þvílíkur að ég held ég hafi aldrei séð annan eins mannfjölda á jafn litlum fleti og þar. Heilir 63.000 fermetrar ætli þar hafi ekki verið um 25.000 manns. Mig svimaði þarna en samt náðum við að vera þarna í tvo tíma.

Síðan var ferðinni heitið yfir Fífuhvammsveginn og inn í Smárann. Við fórum inn í Elko og versluðum nokkrar jólagjafir, ég get svo svarið það að röðin náði frá kössunum og út að Reykjanesbraut. Fólk er klikkað og þar á meðal ég, að ég hafi ekki verið löngu búinn að versla áður.

Svo fóru krakkarnir inn í Kringluna en á meðan fór ég inn í Nexus á Hverfisgötunni og verslaði DVD-myndir. Nexus er snilld, þar fást DVD myndir sem ekki eru seldar i BT eða Elko.

Fólk er ruglað tveimur dögum fyrir jól. Jæja, núna ætla ég að fara og horfa á sjónvarpið og sofna svo. Á morgun er Þorláksmessa og við ætlum í skötu hjá ömmu og afa á Ferjubakka í hádeginu, síðan verð ég í jólatrjáasölu Björgunarsveitarinnar Brákar á morgun milli hálf tvö og fjögur.

Fleira var það ekki

Kiddi kveður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Maren

Þú ert nú meiri kallinn...ég er sjúk í að vera í röðum ég hreinlega sækist í þennan fjanda

Verðið þér að góðu í þessum skötu fjanda og vonandi verði ykkur að vind og skít...djók..þetta er notla bara nett öfund í því að borða ekki þennan fjanda en samt var ég nú alinn upp í þessum vibba á þorlák

Gleðileg jól Kiddi minn og hafðu það sjúklegt um jólinn!

Maren, 23.12.2007 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband