Af bakverkjum og bloggleysi

Var að skoða bloggið mitt og það eru meir en tvö ár síðan ég bloggaði síðast. Bloggleysið stafaði bara af algjöru metnaðarleysi og það líka að allir voru og eru með blogg, þetta týpíska 2007 dæmi. Ísland hrundi, bókstaflega, þ.m.t. fjárhagur landsmanna, þessi bóla sem hélt áfram að stækkaði sprakk loksins í andlitið á okkur, þ.e. græðgin, að þurfa að eiga allt og alla.

Núna ligg ég, reyni að sofna en get það ekki sökum bakverkja er ég fékk þegar ég stóð upp úr bíl einum, var farþegi nota bene. Guði sé lof fyrir sterkum verkjatöflum.

Ætla að reyna að sofna ef ég get.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Guðrún Konráðsdóttir

Haltu endilega áfram að blogga, þótt nú sé 2010 og bráðum 2011 og líka eftir að þér batnar í bakinu

Birna Guðrún Konráðsdóttir, 7.12.2010 kl. 03:53

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband